Úlfur......Ólafur Auđunsson
Góðann daginn dúllur og druslur.Ég var fyrir mörgum árum staddur inni í kennslustofu... já það er satt. Við hlið mér sat ungur og fjallmyndalegur og ljúfur drengur. Þó svo að mér hafi fundist þetta um þennan dreng voru ekki alveg allir sammála mér... En er þegar kennarinn okkar byrjaði að lesa upp nemendurnar kom að lokum að félaga mínum, og kennarinn les upp "ÚLFUR" og félagi minn Úlfar nokkur Ragnarsson segir á móti " ég heiti nú Úlfar".
" Nei veistu að einn er yfirdrifið nóg " svarar kennarinn. Það er vissara að hún komist ekki að því að það þeir eru núna tveir...
En ég vil óska Ingveldi og allri hennar fjölsk. innilega til hamingju með nafnið á Keisaranum, Úbbi Ingu er mjög fallegt og gott nafn.
KISSKISS
Kína.Ólafur Auđunsson
Sæl.
Jæja það er nú kominn tími til að skrifa eitthvað, en ég er enn í Kínverskum stíl það þarf að ritskoða allt! Kína ferðin gekk hrikalega vel, þjónustan sem maður fékk var meiri en ég hef nokkurntímann fengið. Það allra skringilegasta sem ég lemti í var að við fórum í gufu og nudd þegar við komum á hótelið. Það virkaði þannig að þú fékst allt til alls á sauna hæðinni þannig að þú bara mættir. Þegar þú kost svo inn í karlaklefann komu 3 gaurar á móti þér og fylgdu þér um allt. Þeir meira að segja hjálpuðu þér úr fötunum??? Þeir hjálpuðu þér úr nærunum tóku þær og brutu þær saman og settu í skápinn þinn. Eftir að maður var kominn inn í gufuna þá komu þeir þangað settu vatn á steinana og færðu manni vatnsglas. Svo þegar maður kom út biðu þeir fyrir utan og bentu manni á sturturnar, eftir sturturnar hjálpuðu þeir manni í skýluna og vöfðu manni inn í handklæði og fóru með mann í nudd. Sama saga endurtók sig svo þegar maður kom úr nuddinu. Þeir opnuðu svo skápinn og hjálpuðu manni aftur í fötin.... Mjög undarlegt.
Annars var þetta allt fínt nema að það var svaðaleg mengun en ég held að ég hafi tapað um það bil 15 árum af ævinni með því að fara þarna. Það var samt mjög gaman að rölta um og skoða það sem maður gat séð þrátt fyrir mengun og ryk. Það var nú samt skondið að við Elli vorum á röltinu eftir einhverju bakstrætinu í bæ sem heitir Changsha þegar kona kemur út ú húsi, hún lítur á okkur bakkar svo aftur inn skömmu seinna kemur hún aftur þá með tvær konur í viðbót og horfðu þær svo allar á okkur labba framhjá. Skömmu eftir það munaði engu að við fengjum innihald kopps yfir okkur en það er víst bara nokkuð eðlilegt að sulla þessu út um gluggan hjá sér!!
Jæja meira seinna farinn að vinna ( skoða mb.is ).
kisskiss
Shanghai....Ólafur Auđunsson
Jæja elskurnar.
Þá er karlinn kominn aftur frá Kína. Svakaleg ferð, margt og mikið að sjá og BORÐA. En það eru hellingur af sögum sem ég gæti sagt og að sjálfögðu hellingur að sögum sem ég get ekki sagt..... Þetta er ferðalag sem ég hefði ekki viljað missa af það var svo margt merkilegt að sjá spurning hvort ég fái ekki Sunnu til að setja eitthvað af myndum inn á síðuna hjá strákunum flótlega þannig að þið getið séð eitthvað af því sem ég sá. Það eina sem var ekki nógu gott var mengunin en hún var svakaleg en það var þannig stundum að maður sá bara nokkur hús niður götuna og svo hvarf allt inn í mengun. Þannig að ég hef sennilega skafið um það bil 15 ár af ævinni með því að fara þanngað. Ég skil núna afhverju fólk er með grímur þegar það er utandyra. Ég afrekaði að fá mér fullt af sérkennilegum mat Rottu held ég, snák, (Bull frog) hvernig sem það er á ísl., snák, og svo voru það eistun eða limirnir en við vorum ekki alveg vissir um hvað það væri ( en það bragðaðist vel ). En ég mun koma með fleir sögur á komandi dögum.
KISSKISS
Afsökun!!!Ólafur Auđunsson
En þannig er málið að um eitt leitið í nótt þurfti Sunna að skreppa á klósettið en eins og ég hef einhverntímann sagt frá þá er henni alger ógerningur að læðast.
Þannig að þegar hún labbar um sem hljóðlegast um eða reynir að læðast þá er það nokkuð víst að hún mun reka sig á allt sem fyrir er. Það er það sem gerðist í nótt. Hún hefur gengið svo hrikalega um að það hefur komið fram á skjálftamælum !
Þannig að mér finnst ég knúinn til að biðjast afsökunar á hegðun konunar.
KISSKISS
Ég er ekki hćttur!Ólafur Auđunsson
Það er bara þannig að ég er búinn að vera að skoða svo mikið Shanghai, að ég hef ekki hugsað um neitt annað. En eins og flestir vita þá fer ég í ferðina miklu á Föstudag. Eftirvæntingin er orðin gífuleg. En það sem ég er spenntastur fyrir er að smakka ROTTU en það er víst mikið um þær á matseðlunum um þessar mundir enda ár rottunar. En annað sem ég hlakka til að prufa er hundur, en ég hef heyrt að þeir séu góður matur. Þannig að ég hef verið að skoða góða matsölustaði, þannig að það sé allt klárt.jæja KISSKISS
Gubb....Ólafur Auđunsson
Það er einhvernveginn takmörkuð nennan hjá mér núna.. En þannig er það bara að Aron var með Ælupestina miklu frá síðasta föstudag fram á mánudag. En þegar hann kláraði þá tók Auðunn við og var með ælu fram á miðvikudag.. Svaðalegt fjör hjá öllum þessa dagana. Þannig að þetta miðannar frí er búið að fara í að æla og liggja uppí sófa.En við þessar aðstæður skapast ekki mikið til að tala um og vilja sjálfsagt fæstir annað hvort tala um eða lesa um ælu sögur. Þannig að ég læt þetta duga þessa viku og vonandi verður eitthvað meira að segja frá í næstu viku. En þanga til þá þá bið ég bara að heilsa ykkur.
KISSKISS
Ţađ hlustar einhver á mig....Ólafur Auđunsson
Það er gaman þegar einhver hlustar á mig. En það er bara þannig að Óli jr mætti bara á svæðið fljótlega eftir að ég hvatti hann til þess. En ég vil óska Ingveldi og fjöl. innilega til hamingju með viðbótina. Ég er viss um að þarna sé enn einn snillingurinn kominn. Ég vona samt að hann eigi eftir að halda áfram því sem hann byrjaði og láta mömmu sína hafa svolíti fyrir sér.KISSKISS
Ingveldur........Ólafur Auđunsson
Jæja hvernig er það fer ekki kerlinga álkan að gjóta?????Ég er búinn að bíða spenntur eftir komu Óla jr. í marga mánuði og núna er það bara þannig að að ég krefst þess að honum verði komið í heiminn hið snarasta!!! Aumingja drengurinn að fæðast inn í þessar aðstæður. Þarna verður hann umkringdur Kerlingum (og reyndar er Þórður þarna en hann er sjálfsagt orðinn of skemmdur ), piparjónkum og skessum.... greyið, hann á sér enga von. Það er spurning hvað er hægt að gera. Endilega komið þið með hugmyndir.
KISSKISS
Uppsagnir.Ólafur Auđunsson
Nú er illt í efni, en bretinn er orðinn svo upptekinn á því að skyndiréttir séu óhollir að núna selst ekkert í skyndiréttum. Þannig að félagar mínir sem ég vann með í sumar eru allir svolítið smeikir. En kjaftasagan á skrifstofunum er sú að uppsagnir séu væntanlegar. Þetta er ekki nógu gott, en salan hjá okkur hefur líka verið að dragast saman þannig að það er spurning hvort maður þurfi að fara að leita sér að vinnu fljótlega. Nei það ætti ekki að koma fyrir hérna en við erum með mjög heilsusamlegar súpur og sósur.
Annað er ekki að frétta. Nema að ég fann á netinu fyrirtæki sem sér um að sækja um vegabréfsáritanir fyrir fólk. Þannig að í gær fylti ég út alla pappíra og setti í umslag og sendi svo í pósti...... Ég verð að viðurkenna að það er sérstök tilfinning að vera í útlöndum með ekkert vegabréf. En ég vona að þetta gangi og ég fái nú allavegana vegabréfið mitt aftur og það væri plús að vera með visa . En að sjálfsögðu getur maður treist öllu sem maður fynnur á netinu !!!
Jæja KISSKISS
Golf.Ólafur Auđunsson
Ég er á fullu að reyna að fynna afsökun fyrir því eða koma með fyndinn punkt í smabandi við þetta allt en ekkert kemur. Málið er að ég er orðinn hundleiður á því að hanga á leikvöllum að drepast úr kulda meðann þeir djöflast þannig að mér datt í hug að kaupa golf kylfur handa þeim. Það var nú enginn smá gleði þegar farið var að slá... Auðunn skaut fyrst í burtu frá okkur en labbaði svo að kúlunum og skaut þeim svo til baka.... í áttina að okkur!!! Aroni fannst betra að slá alltaf 5 kúlum í einu en að hans sögn var mun betra að hitta þannig.... undarlegt, en hans kúlur fóru að sjálfsögðu aldrei beint þannig að það var betra að vera með kveikt á öllum. Þannig að þegar ég var að hlaupa undan öllum kúlunum eða að passa það að vera ekki sleginn með kylfu. þá leiddis mér aldrei og mér varð ekki kalt. góð hugmynd hjá mér.
Jæja
KISSKISS
